Kveldið.
Óskaplega er ég löt í dag. Ég er ekkert búin að gera nema sofa, knúsa púkann minn og hanga í tölvunni. Já, og setja í þvottavél, sem er meðal leiðinlegustu heimilisstarfa í heiminum! ... (kannski því ég þarf að ganga upp og niður tvær hæðir). Ef ég ætti að setja niður svona
"Topp 5 leiðinlegustu heimilisstörfin" þar sem nr. 1 væri það allra leiðinlegasta, þá liti sá listi svona út:
1 Brjóta saman þvott
2 Skipta á rúmum
3 Setja í uppþvottavél
4 Setja í þvottavél
5 Strauja
Mér þykir hins vegar ekkert svo leiðinlegt að taka til og ryksuga, en það er víst ekki á allt kosið.
Við skelltum okkur á Langa í gærkvöld og hlýddum á tónleika (sjá á síðu
Langa Manga) og voru þeir nokkuð magnaðir. Svo var bara hefðbundið djamm á eftir sem var barasta ágætt.
Hvað er eiginlega málið með svona seinnipartsþynnku? Ég er sjaldnast þunn þegar ég vakna en yfirleitt hellist yfir mig alveg skelfilega pirrandi þynnka svona í kringum kvöldmat. Þetta er algjörlega óháð því hvað/hvort ég borða eða drekk eða hve lengi ég sef. Þetta er bara svona, en hver ætli skýringin sé? Ó vell...
Bleble.